Rannsóknarnefnd umferðarslysa |
![]() |
| Forsíða | Fréttir | Lög RNU | Nefndarmenn | Skýrslur | Tenglar | Fróðleikur | Tillögur í öryggisátt | |
|
4
látnir í umferðinni 2010
|
Velkomin á vef Rannsóknarnefndar umferðarslysa
Rannsóknarnefnd umferðarslysa (RNU) annast rannsókn banaslysa og alvarlegra umferðarslysa. Markmið með rannsóknum RNU er að finna og skilgreina veikleika og galla sem skaðað geta umferðaröryggi, svo og að finna orsakaþætti eða líklega orsakaþætti, svo og meðverkandi orsakaþætti sem leiddu til þess að banaslys eða alvarlegt umferðarslys varð. 15. júlí 2010 Skýrsla RNU 2009 Út er komin ársskýrsla Rannsóknarnefndar umferðarslysa fyrir árið 2009. Árið 2009 fórust sautján manns í fimmtán umferðarslysum á Íslandi. Það eru fimm fleiri en árið 2008 þegar tólf fórust í tólf umferðarslysum. Þegar litið er aftur í tímann má sjá að nokkur fækkun hefur orðið á banaslysum í umferðinni. Á sex ára tímabili árin 1998-2003 fórust að meðaltali tuttugu og sex í umferðarslysum. Undanfarin sex ár (2004-2009) hafa að meðaltali farist tuttugu manns og skera árin 2007-2009 sig þar nokkuð úr hvað fækkun varðar.
Áfengislás og lækkun refsimarka í 0.2 prómill.
Ölvunarakstur var algengasta orsök banaslysa árið 2009 en þrjú slys má rekja til þess að ökumenn voru ölvaðir og vanhæfir til aksturs. Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur lagt til við nefnd um endurskoðun umferðarlaganna tvö úrræði til að sporna við ölvunarakstri. Það er mat nefndarinnar að refsimörk vegna ölvunaraksturs eigi að vera sem næst núlli og því leggur nefndin til að mörkin verði lækkuð úr 0,5 prómillum í 0,2 prómill. Hin tillaga nefndarinnar felur í sér að settir verði áfengislásar í bifreiðir ökumanna sem hafa verið teknir fyrir ölvunarakstur. Sú aðgerð er fyrst og fremst hugsuð vegna ökumanna sem aka endurtekið undir áhrifum áfengis og láta ekki segjast. Samhliða áfengislás myndu ökumenn undirgangast námskeið um hættu sem af ölvunarakstri stafar. Ítarlega er fjallað um þessa tillögu nefndarinnar í skýrslunni.
8. júlí 2010 Skýrslur RNU um banaslys á Þingvallavegi, Birkimel og Hverfisgötu árið 2009 |
© Rannsóknarnefnd umferðarslysa RNU | v/Flugvallarveg, 101 Reykjavík | Sími: +354-511-5040 Fax +354-511-5041 | rnu@rnu.is |